AI-spjall fyrir íslensk fyrirtæki

Viðskiptavinir fá svör.
Þú færð frið.

Gestaspjall svarar algengum spurningum viðskiptavina allan sólarhringinn — á íslensku og ensku — með upplýsingum sem fyrirtækið þitt hefur samþykkt.

  • Tilbúið á 3 dögum
  • Sett inn fyrir þig
  • Engin binding
G
Gestaspjall Tilbúið að aðstoða
Hæ! 👋 Hvernig get ég aðstoðað?

Alvöru AI-sýnishorn · Uppspunnið hóteldæmi · Ekki senda persónu- eða greiðsluupplýsingar

Færri endurteknar spurningar. Skýrari upplýsingar. Betri upplifun fyrir viðskiptavininn.

Svör þegar viðskiptavinurinn þarf á þeim að halda

Spjall sem þekkir fyrirtækið þitt

Við byggjum svörin eingöngu á upplýsingum sem þú samþykkir. Ef svarið er ekki staðfest, þá giskar spjallið ekki.

24/7

Alltaf til staðar

Viðskiptavinir fá svör við algengum spurningum, líka eftir lokun og þegar starfsfólkið er upptekið.

IS / EN

Íslenska og enska

Spjallið svarar á tungumáli viðskiptavinarins. Fleiri tungumál er hægt að bæta við eftir þörfum.

Þú stjórnar svörunum

Þú ferð yfir og samþykkir upplýsingarnar áður en spjallið fer í loftið.

Vísar rétta leið

Viðskiptavinurinn er sendur beint á rétta pöntunar-, bókunar- eða upplýsingasíðu þegar það á við.

Algengar spurningar viðskiptavina

Viðskiptavinurinn spyr.
Gestaspjall svarar strax.

Spjallið notar samþykktar upplýsingar fyrirtækisins, reiknar einföld verð og segir skýrt frá þegar starfsfólk þarf að staðfesta eitthvað.

  • 01
    Svarar allan sólarhringinnViðskiptavinurinn þarf ekki að bíða eftir opnun.
  • 02
    Skilur eðlilegt talmálLíka stuttar spurningar og smávægilegar stafsetningarvillur.
  • 03
    Giskar ekkiÓviss mál fara áfram til starfsfólks.

„Hvenær er innritun?“

G

Innritun hefst kl. 15:00. Ef þú kemur eftir kl. 22:00 færðu lyklakóða sendan í tölvupósti.

Upplýsingar svaraðar strax

„Hvað kosta 5 nætur?“

G

Standard tveggja manna herbergi kostar 174.500 kr. fyrir 5 nætur. Morgunverður er innifalinn.

Reiknar út frá samþykktu verði

„Eru veitingastaðir nálægt?“

G

Já. Ég get sagt þér hvað er í nágrenninu, hvers konar matur er í boði og hversu langt er að fara.

Hjálpar gestinum að skipuleggja dvölina

„Get ég bætt við einni nótt?“

G

Þú getur óskað eftir aukanótt. Það fer eftir framboði og starfsfólk staðfestir breytinguna.

Rétt mál sent áfram til starfsfólks
Við sjáum um uppsetninguna

Tilbúið á þremur dögum

Þú þarft ekki að læra nýtt kerfi eða byggja vefinn upp á nýtt.

  1. 01

    Við lesum síðuna þína

    Við tökum saman opnunartíma, verð, aðstöðu, reglur, bókunarhlekk og algengustu spurningarnar.

  2. 02

    Þú staðfestir svörin

    Þú ferð yfir upplýsingarnar með okkur. Það tekur yfirleitt aðeins 15–20 mínútur.

  3. 03

    Við setjum spjallið inn

    Spjallið er stillt í útliti síðunnar og sett inn fyrir þig. Auðvelt er að uppfæra svör síðar.

Öruggt áður en það fer í loftið

Þú stjórnar því sem spjallið segir

Við stillum tóninn, setjum skýr mörk og prófum algengar aðstæður áður en viðskiptavinir sjá spjallið.

01

Upplýsingar samþykktar

Verð, reglur, opnunartímar og svör eru yfirfarin með þér.

02

Raunverulegar prófanir

Við prófum venjulegar spurningar, stafsetningarvillur og spurningar sem spjallið á ekki að svara.

03

Manneskja tekur við

Ef staðfest svar vantar segir spjallið það skýrt og vísar viðskiptavininum áfram.

Byggt til að hjálpa — ekki giska

AI sem veit hvenær það á að svara og hvenær það á að vísa áfram

Gestaspjall er stillt út frá upplýsingum fyrirtækisins. Þannig fær viðskiptavinurinn gagnlegt svar án þess að spjallið þykist vita eitthvað sem þarf starfsfólk eða annað kerfi til að staðfesta.

Staðfestar upplýsingar

Opnunartími, verð, reglur, matur, staðsetning og annað sem fyrirtækið hefur yfirfarið.

Óviss mál fara rétta leið

Lagerstaða, sérbeiðnir, sértilboð og annað sem þarf rauntímastaðfestingu er vísað áfram í rétt kerfi eða til starfsfólks.

24/7

Algengu spurningarnar klárast strax

Viðskiptavinurinn getur fengið svar þegar honum hentar, líka þegar starfsfólkið er upptekið eða fyrirtækið lokað.

Kynningarverð fyrir fyrstu þrjú fyrirtækin

Einfalt verð.
Engin óvænt gjöld.

Við sjáum um að lesa síðuna, útbúa svörin, fara yfir þau með þér og setja spjallið inn.

Gestaspjall79.900 kr.uppsetning
+ 14.900 kr.á mánuði
  • Íslenska og enska
  • Svarar út frá samþykktum upplýsingum fyrirtækisins
  • Sett inn á núverandi heimasíðu
  • Breytingar fyrstu 14 dagana fylgja
  • Engin binding eftir fyrsta mánuð
Fá ókeypis sýnishorn

Engar kortaupplýsingar · Engin skuldbinding

Algengar spurningar

Gott að vita

Getur spjallið gefið rangar upplýsingar?+

Við byggjum spjallið á svörum sem þú hefur yfirfarið og samþykkt. Ef upplýsingar vantar á það ekki að giska.

Þarf að byggja heimasíðuna upp á nýtt?+

Nei. Spjallið er lítil viðbót sem við setjum inn á núverandi heimasíðu og stillum í takt við útlitið.

Get ég breytt svörunum síðar?+

Já. Viðskiptavinir fá Mína síðu þar sem þeir geta sent inn nýjar spurningar og breytingar. Gestaspjall fer yfir þær áður en þær fara í loftið.

Hvernig virkar ókeypis sýnishornið?+

Við skoðum síðuna þína og útbúum lítið dæmi sem sýnir hvernig Gestaspjall gæti svarað viðskiptavinum þínum. Engin skuldbinding fylgir.

Getur Gestaspjall séð hvaða herbergi eru laus?+

Grunnuppsetningin svarar upplýsingaspurningum og getur vísað gestinum á bókunarsíðuna. Til að staðfesta rauntímalaus herbergi þarf tengingu við bókunarkerfið.

Hvað gerist ef svarið er ekki til?+

Þá á spjallið ekki að búa til svar. Það segir gestinum að upplýsingarnar þurfi staðfestingu og vísar honum áfram á rétta leið.

Hvað með persónu- og greiðsluupplýsingar?+

Í sýnidæminu biðjum við gesti sérstaklega um að senda ekki persónu- eða greiðsluupplýsingar. Fyrirtækið ákveður hvaða upplýsingar Gestaspjall fær til að svara út frá.

Ókeypis og án skuldbindingar

Sjáðu hvernig þetta gæti virkað hjá þér

Sendu okkur heimasíðu fyrirtækisins. Við skoðum hana og sendum þér ókeypis sýnishorn innan eins virks dags.

gestaspjall@gmail.com

Engin skuldbinding · Svar innan eins virks dags · Upplýsingum er ekki deilt með öðrum